Frisbí Teningar
DiscDice
Þetta er það skemmtilegasta sem hefur komið í sölu hjá okkur; teninga frisbí golf leikurinn DiscDice eða frisbí teningar á góðri íslensku.
Um er að ræða leik sem á heldur betur til að krydda uppá frisbí golfið.
Hver DiscDice poki inniheldur tvo teninga og reglumiða.
Leikreglur:
Snúið við disk og kastið báðum teningum.
Skildi t.d annar teningurinn sýna bakhönd og hinn pútter;
er það kastið sem allt hollið þarf að kasta af tíinu á þeim teig sem dæmi.
Auðvitað frjálst að leika sér með leikinn, hér eru nokkur dæmi;
-DiscDice kast fyrir hvert frisbí kast.
-DiscDice kast bara af tíinu.
-DiscDice kast fyrir hvern og einn á tíinu.
-2til3 DiscDice köst af tínu, besta kastinu púttað eða kastað áfram.
Við erum stoltur opinber söluaðili DiscDice á Íslandi.
Góða skemmtun.